Bloggið hans Villa
07.11.2006 17:41:27 / villi

kominn vetur!

Já komið þið sæl og blessuð. Kominn tími á mig að blogga!

Af mér er allt gott að frétta. Prufuspilið gekk mjög vel um daginn í Radio Sinfóníunna en svo var nú þannig að ENGINN fékk starfið. 22 sem spiluðu en Engin fékk stöðuna. Svona getur það verið hörð samkeppni og miklar kröfur. :) en það verður prufuspil aftur seinna hjá þeim. þá er að kýla á það síðar. Þetta er nú án efa eitt af bestu störfunum í Finlandi í þessum bransa þannig að það er skiljanlegt að dómnefndin geri miklar kröfur.
Er ánægður með eigin frammistöðu og betra hefði það ekki getað orðið þann daginn :)

Yess... nú það sem er frammundan hjá mér næstu vikur er að ég er að spila í Söngleiknum fræga Fiðlaranum á Þakinu (Fiddler on the Roof) sem er fínt djobb. Alltaf gaman að spila Hollywood stöff!! ;) þar sem maður þarf að spila hátt uppi og sterkt. Við spilum í gömlu óperunni hérna í Helsinki sem er alveg snilldar hús... Það er mjög flókið að rata þar inni.. og tókst mér meira að segja að villast og læsa mig inni.. hahah.. svona getur alltaf gerst...:)

Nú svo er vetur konungur heldur betur kominn hérna.. Bara 1. nóvember kom snjór og kuldi... og virðist halda áfram allavega næstu daga..BRRRRRRRR....
hafið það gott.


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.