Bloggið hans Villa
29.08.2007 15:55:34 / villi

Hallo skrallo!!

Ja kaera Blogg...!!! eg hef nu verid bysnu latur vid ad sinna ther thar sem nytt fyrirbaeri sem heitir Facebook hefur tekid mestan timann a netinu. Fyrir alla sem eru vel inn i Tövluheiminum i dag tha maeli eg med notkun www.facebook.com.. thetta er mun skemmtilegra en bloggid verd eg nu ad segja en allir verda ad finna eitthvad vid sitt haefi.:)

kvedjur..


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 09:20:34 / villi

Hvað á að gera við flugvöllinn??

Það er hreint með ólíkindum að hlusta á umræðuna um Reykjavíkurflugvöll í fjölmiðlum landsins. Hlustaði á fréttir á stöð 2 í gær um að meirihluti íbúa grafarholts er á móti fyrirhuguðum flugvelli á hólmsheiði. Þjóðhagslegur ágóði er af flutningi flugvallarins úr vatnsmýri til hólmsheiðar um 40 milljarða en kostar svo einungis 15 milljarða að búa til nýjan

vissulega er það ódýrara en eigum við ekki að staldra aðeins við í þessari umræðu. Sjálfur hef ég nú verið þeirrar skoðunar að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýri enda stutt í allt fyrir þá sem koma frá landsbyggðinni til höfuðborgarinnar. Þeir sem nota flugvöllinn eru að fara til eða frá Reykjavík og þurfa mest á þeirri þjónustu að halda sem finnst miðsvæðis í Reykjavík. þ.e.a.s Landspítalinn, og helstu stofnanir landsins.

Reykjavík er höfuðborg landsins og sem landsbyggðarmaður að uppruna finnst mér að flugvöllurinn eigi að vera inn í höfuðborginni nálægt helstu þjónustu landsmanna og eigi ekki að flytja yfir á hólmsheiði. Þar sem ég hef búið nú erlendis í 4 ár hef ég vanist þeirri þjónustu að í hverri borg eru lestarstöðvar í miðborginni sem aðalsamgöngunet landsins. Má þar með líta svo á að flugvöllurinn í Vatnsmýrínni sé aðal Lestarstöð landsins sem á að vera staðsett miðsvæðis með það að leiðarljósi að hagkvæmast sé að ferðast milli landshluta. Flutningur vallarins upp á hólmsheiði eykur ferðatíma augljóslega þeirra sem ferðast milli landshluta. Þetta mun bara leiða til afturfara í Samgöngumálum íslendinga og enn fleiri myndu því þurfa að ferðast lengri vegalengdir á bílum sínum, bæði til og frá Hólmsheiði til Miðborgar Reykjavíkur og öfugt.

Ég er þá þeirrar skoðunar að ef að vatnsmýrarflugvöllur fer svona rosalega í taugarnar á borgaryfirvöldum sem þurfa nú að græða sem mest á lóðasölu í skyndihagnaði þá er ég þeirra skoðunar að frekar ætti að flytja hreinlega allt innalandsflug til Keflavíkur með þeim skilyrðum að koma á hraðlest milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Tökum til sem dæmi Norðmenn. Þeir fluttu sinn flugvöll frá Fornebu sem er um 10 km frá Osló til Gardermoen sem er um 50 km frá Osló. Þeir brugðust þannig við að koma á hraðlest milli miðborgar Oslóar til Gardermoen sem tekur um 20 min. Þannig þyrftum við þá að taka þetta okkur til fyrirmyndar ef við flyttum allt innanlandsflug til Keflavíkur með því að koma á lest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.

Það er augljós þjóðhagslegur ábóti með því ef lest yrði komið á milli Kef og Rvk. Þá værum við að tala um minni bílaumferð á Reykjanesvegi og slysum myndi stórfækka.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 18:49:10 / villi

Hann á afmæli í dag....

Tíminn líður hratt!!! Kallinn á víst afmæli. Búinn að fá flotta köku og blása á kerti í dag.. er svo að fara út að borða með konunni í kvöld.. Best að njóta þess áður en maður verður þrítugur. hahahaha :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 20:30:09 / villi

Hæhæ..

Komiði sæl.. Já afsakið hversu lengi ég hef verið að skrifa nýja færslu en betra er seint en aldrei eins og segir í einhverri vísunni... haha ;)

já semsagt er nýkomin til baka til Helsinki eftir að hafa verið ásamt kærustunni heima á íslandi að spila með óperunni í febrúar. Það var mjög góður tími og lærdóms og innihaldsríkur. Óperan gekk mjög vel og var rosa gaman að taka þátt í þessari uppsetningu. Núna framundan hjá mér eru afmælstónleikar hjá Síbelíus Akademíu þar sem skólinn verður 125 ára gamall.!!!það verður stuð. Á efnisskránni verður að mestu leyti Síbelíus (skiljanlega) ásamt fleirum gullmolum. já svo styttist víst í afmælið bráðum,,, já það líður víst tíminn en ég er ekki alveg að fatta að ég sé að verða 27 ára.. kanski fatta ég það þegar árið er liðið.. hahahah,,, 

Jú svo vildi ég óska hljómsveitinni minni Ísafold til hamingju með útgáfuna á geisladisknum okkar. TIL Hamingju krakkar.. þetta er frábært!

Ha det bra 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 17:12:33 / villi

Áfram Ísland...

TIL HAMINGJU MEÐ FRÆKILEGAN SIGUR GEGN FRÖKKUM...

ÁFRAM ÍSLAND!!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 19:57:53 / villi

Gleðilegt nýtt ár!!

óska öllum vinum og ættingjum gleðilegs nýs árs og friðar árið 2007 :)
Gangi öllum í haginn á þessu nýja ári og heilsist vel.





» 1 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 15:34:10 / villi

Jólin nálgast

Halló halló allir.

Af mér er allt besta að frétta. Fór í tvö prufuspil um daginn. Þau voru í Kymi sinfóníu og í pori Sinfóníuettu hér í Finnlandi. prufuspilin gengu mjög vel og komst ég í þriðju umferð og lenti í 3.sæti í Pori. 17 sem spiluðu og 4 í aðra umferð og 3 í úrslit. Ég er mjög ánægður með árangurinn og er mjög sáttur kominn heim til íslands í jólafríið.

Já semsagt er komin heim til landsins og dunda við að gera ekki neitt þessa dagana:)

Ég er búinn að eignast nýjan frænda. Hann kom í heiminn fyrr í þessum mánuði og er ég afar stoltur að eignast nýjan frænda.. Gurra og Einar innilega til hamingju aftur. :)

hér á Akureyri er veðrið búið að vera hið undarlegasta. ég sem hélt ég myndi koma heim í snjó og fallegt jólaveður en sl. 2 daga er búið að vera hörku rigning og rok og flæðir heldur betur. !! ég vona að þetta líði sem fyrst hjá og ´fari nú að snjóa aftur.

Ég óska öllum vinum og ættingjum gleðilegra jóla :)

Jólakveðja Villi


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 17:41:27 / villi

kominn vetur!

Já komið þið sæl og blessuð. Kominn tími á mig að blogga!

Af mér er allt gott að frétta. Prufuspilið gekk mjög vel um daginn í Radio Sinfóníunna en svo var nú þannig að ENGINN fékk starfið. 22 sem spiluðu en Engin fékk stöðuna. Svona getur það verið hörð samkeppni og miklar kröfur. :) en það verður prufuspil aftur seinna hjá þeim. þá er að kýla á það síðar. Þetta er nú án efa eitt af bestu störfunum í Finlandi í þessum bransa þannig að það er skiljanlegt að dómnefndin geri miklar kröfur.
Er ánægður með eigin frammistöðu og betra hefði það ekki getað orðið þann daginn :)

Yess... nú það sem er frammundan hjá mér næstu vikur er að ég er að spila í Söngleiknum fræga Fiðlaranum á Þakinu (Fiddler on the Roof) sem er fínt djobb. Alltaf gaman að spila Hollywood stöff!! ;) þar sem maður þarf að spila hátt uppi og sterkt. Við spilum í gömlu óperunni hérna í Helsinki sem er alveg snilldar hús... Það er mjög flókið að rata þar inni.. og tókst mér meira að segja að villast og læsa mig inni.. hahah.. svona getur alltaf gerst...:)

Nú svo er vetur konungur heldur betur kominn hérna.. Bara 1. nóvember kom snjór og kuldi... og virðist halda áfram allavega næstu daga..BRRRRRRRR....
hafið það gott.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 17:59:00 / villi

hallo skrallo

Ja saelt veri folkid. Mikid ad gera hja mer thessa dagana. Er a leid i Prufuspil a manudaginn i Radio Sinfoniunna i Helsinki. Thad er rosalega mikill undirbuningur buinn ad vera fyrir thetta prufuspil og gigantiskar krofur sem their setja a umsaekjendur. Mikid ad spila og undirbua. en thetta verdur mjog ahugavert og skemmtilegt ad taka thatt i. Mer list vel a thetta og aetla ad gera mitt besta.
Ja svo var eg heima fyrir 2 vikum ad spila.. Tonleikarnir gengu svaka vel og mjog gaman var spila. Nu fleiri frettir eru thaer ad eg aetla ad taka mer helgarfri eftir prufuspilid og fara til Tallinn med nyju kaerustunni minni henni Ingrid Lindblom Fidluleikara. :) hun er Finnsk og er herna i  akademinunni med mer. Sjalfsagt margir bunir ad bida eftir thvi ad eg geri thetta opinbert.. Here it comes.. :) tha vitid thid thad her med :)
Hafid thad gott elskurnar og vid heyrumst sidar.

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 08:25:57 / villi

Blogg hefst á ný..

Komið þið sæl......
Eftir langa pásu þá hef ég ákveðið að taka upp pennan á ný og fara að blogga. Vegna mikillra áskoranda og hvatningar þá hefjast nú ritin á ný og vona að ég haldi nú þessu almennilega við í vetur. ;) Hef ekki haft löngunina til að blogga en nú finnst mér tíminn vera komin til að bæta úr þesssu..

Yess... AF mér er allt gott að frétta Sumarið var gott og tókum við í hljómsveitinni minni ísafold upp eitt stykki plötu sem ég er mjög stoltur með. Verður mjög gaman að hlusta á afraksturinn þegar hún verður fullgerð :) Við túruðum um landið einnig og héldum tónleika á ísafirði, Akureyri og Reykjavík.
Núna er ég kominn aftur út til Finlands og er á fullu í Síbelíus Akademíunni ásamt því að vinna af og til. Hér finnst mér frábært að vera og líður mjög vel.  Ég þarf nú samt að vera með annan fótinn heima á íslandi í vetur . T.d. þarf ég að koma heim í næstu viku og spila með Sinfó, píanókonsert eftir Penderecki. Kristín?? fæ ég gistingu hjá þér ? ;) svo bíða stóru verkefnin en það stærsta verður prufuspil í Radió Sinfóníunna hér í Helsinki 16 okt. n.k.  Það er heavy vinna að undirbúa það en mjög gaman einnig að fást við slík tækifæri.:)
Heyrumst krakkar...



» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 08:13:06 / villi

jæja loksins..

úpss.. maður er orðinn slakur bloggari.. best að fara að herða sig. Margt að gerast. Er að koma til íslands í byrjun maí að spila Mahler 6 með sinfó. Gaman það!!! :) hér er þokkalega vorið komið og sól og blíða búið að ríkja síðustu daga. Er á leiðinni eftir stuttu íslandsdvölina til Stokkhólms í prufuspil!! það verður challenge. !! hlakka mikið til í það. Ella Vala vinkona var í heimsókn á dögunum þar sem hún var í Tampere á Hornfestivali. Gaman að fá þig í heimsókn Ella og velkomin aftur.! Lífið gengur annars sinn vanagang. Páskarnir voru rólegir og fínir.. át í fyrsta sinn Finnskt lambakjöt sem hún Anna Huga bauð okkur Steinunn í veislu. Ég verð nú bara að segja að það var betra en ég hélt.. en að sjálfsögðu ekki eins og hið íslenska.. haha :) maður gerir svo stórar kröfur.hahaha Hafið það gott.

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 10:18:53 / villi

Nú fer verulega að síga á þrítugsaldurinn....

 Já kallinn er víst orðinn 26 ára... ég ætlaði nú að blogga þessa færslu í gær. en sökum mikillra anna þá tókst það ekki.. en ég þakka öllum þeim sem mundu eftir afmælinu mínu. kærar þakkir :)

Af öðrum fréttum þá er allt gott að frétta. Hér snjóar og snjóar og virðist ekkert lát vera á því og vorið ekki alveg farið að sýna sig ennþá. 
í næstu viku eru hljómsveitartónleikar hjá Sinfóníuhljómsveit Skólanns. á efniskrá eru Romeo og Júlía e. Tchaikovsky, Fiðlukonsert eftir Shostakovics og 5 sinfónía Eduard Tubins. Býsna gott prógram og þetta verður hörku gaman.

Ég er svaka ánægður og stoltur með hana Járnbrá litlu frænku mína.. hún er víst farinn að labba út um allt og svo er ekkert skemmtilegra en þegar hún er farinn að segja " hæ" í símann og babla við mig í smá stund þegar ég hringi.. ekkert fyndnara. Svo er ég líka svaka stoltur af afa mínum sem var einmitt 91 árs gamall í gær sama dag og ég. :)



» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 16:24:19 / villi

Best að blogga..

Já komið sæl..

já ég er á lífi..hahaa :) hef bara brjálað að gera eins og venjulega sem er gott og gaman að því.. Fór um síðustu helgi í alveg geðveikt skemmtilegt partý hjá skólafélögunum.. Þetta fólk er algjört snilld. Svo verð ég að segja ykkur frá einum vini mínum hérna sem heitir Janne, en hann er mesti snillingur sem ég hef kynnst lengi. Þessi drengur er snilldar eftirherma og tekur þekkta einstaklinga alveg fyrir eins og t.d. George Bush og fleiri. hahaha fyndinn.. en aftur á móti er hann alveg glataður í kvennamálunum og misheppnaður.. t.d  fórum við á bar á sunnudagskvöldið.. já þið heyrðuð rétt Hann bað mig um að koma með sér og sjálfsögðu gerði ég það... jújú við fórum á pöbb.. og svo þegar líða tók á kvöldið þá sagði hann mér að hann væri orðinn skotinn í Þjónustustúlkunni á Barnum .. hahah ég hvet hann til að gera eithvað í málinu en hann harðneitar og talar um hana í 2 klukkutíma við mig án þess að gera neitt... ég var aðeins farinn að pirrast og sagði við hann að ef hann færi ekki að tala við hana þá færi ég í hans stað... hahah en hann neitaði því.. hann sagði svo snilldarlega. "Þegar ég er búinn með bjórinn þá kemur hún og nær í hann og þá spyr ég hana." heyrðu svo fer hann á klósettið og gellan kemur á meðan og glottir til ´mín, svo kemur hann af klósettinu alveg eyðilagður. og ég hló svo mikið af honum... Svona eru Finnskir karlmenn.. tala og tala og gera svo ekkert í málunum hahahahahah. SNILLD


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 16:03:15 / villi

Til hamingju Ísland..

já gott fólk til hamingju með Silvíu...!!

Afsakið hvað ég er búin að vera latur bloggari sl. viku. Alltof mikið að gera bara.. hahha.. kannski bara latur að pikka núna. Eyði of miklum tíma bara í að horfa á skemmtilegt efni á kvikmynd.is !! hahaha mæli með því.

Já fréttir... umm já ég horfði á Júrovision og fannst mér bara keppnin vera mjög áhugaverð og mikið kapp var gert fannst mér til að gera þetta sem best og mér finnst að allir flytjendur eigi heiður skilið fyrir góðan flutning og gott show.. þó svo sum lögin séu síðri en önnur.. en mér fannst þetta í heildina mjög skemmtileg keppni og sérstaklega er ég ánægður með Friðrik Ómar félaga sem lenti í 3.sæti.. innilega til hamingju með það.

njótið lífsins öll sömul og endilega kommentið sem mest.. það er svo gaman að því. :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 11:00:09 / villi

kallin búinn að kaupa sér hljóðfæri...

já haldiði ekki að kallinn sé enn einu sinni búinn að kaupa sér nýtt hljóðfæri.. í þetta skiptið þá er það þýsk hágæðavara sem heitir B&S. Þetta er semsagt Es trompet og þessi týpa  er sérstaklega hannaður fyrir kennarann minn hann Jouko Harjanne. Kemur sér einkar vel að eiga svona gott hljóðfæri þegar maður þarf að spila Haydn og Hummel konsertana ásamt sinfónískum verkum sem eru í Es og E dúr. einnig eru mörg óperuverk einmitt sérstaklega hagstæð fyrir þetta hljóðfæri. Býsna gaman að þessu skal ég segja ykkur. mér líður eins og krakka sem hefur eignast nýtt dót.. hahahah þið skiljið hvað ég meina ;)hafið það gott um helgina


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5